SIF LÖGMENN - ÞJÓNUSTA

Vönduð lögfræðileg ráðgjöf með þína hagsmuni að leiðarljósi

Lausnamiðuð nálgun byggð á áralangri reynslu og ríkri sérþekkingu.

Reynsla
Sérþekking


Viðamikil reynsla af þjónustu við sveitarfélög, byggðasamlög og hagsmunasamtök þeirra

- Umbætur á stjórnskipulagi, regluverki og verkferlum.
- Samningagerð, ráðgjöf og verkefnastýring, til að mynda í stærri uppbyggingar- og þróunarverkefnum.
- Skipulags- og byggingarmál. Sérstök þekking og reynsla m.a. á sviði virkjanaframkvæmda og samningagerðar og málarekstrar vegna eignauppkaupa og eignarnámsferlis.
- Velferðar- og barnaverndarmál.

SIF Lögmenn veita einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum lögfræðilega ráðgjöf á fjölbreyttum sviðum.

Áhersla er lögð á faglega greiningu, framsetningu raunhæfra lausna og mótun skýrra leiða fram á við.

Þjónustan byggir á víðtækri þekkingu og reynslu á sviði stjórnsýsluréttar, eignaréttar, skaðabótaréttar, refsiréttar, fjölskyldu- og erfðaréttar, skiptaréttar, fasteignakauparéttar o.fl.