Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir lögmaður
Stofnandi og eigandi
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir hefur starfað við lögfræðiráðgjöf í yfir 10 ár, eða frá árinu 2016. Hún hefur víðtæka reynslu af lögmannsstörfum, málarekstri og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila.
Dagný lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og mag. jur. prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2018. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum árið 2019.
Hún hefur öðlast umfangsmikla sérþekkingu á stjórnsýslurétti og sveitarstjórnarstiginu í störfum sínum sem lögmaður, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar, og ýmist sem stjórnarmaður eða fulltrúi í ýmsum samstarfsverkefnum sveitarfélaga á Suðurlandi. Í yfir áratug hefur hún komið að lögfræðiráðgjöf, málarekstri, samningagerð og verkefnastýringu fyrir fjölmörg sveitarfélög, byggðasamlög og önnur samstarfsverkefni sveitarfélaga, meðal annars er lúta að:
- - Umbótum á stjórnskipuriti, regluverki og verkferlum.
- - Umfangsmiklum uppbyggingar- og þróunarverkefnum.
- - Skipulags- og byggingarmálum. Sérstök þekking og reynsla m.a. á sviði virkjanaframkvæmda og samningagerðar og málarekstrar vegna eignauppkaupa og eignarnámsferlis.
- - Velferðar- og barnaverndarþjónustu.
Dagný hefur einnig viðamikla reynslu á sviði eignaréttar, meðal annars í þjóðlendu- og landamerkjamálum. Árið 2015 var hún meðhöfundur kennslurits í nábýlisrétti ásamt Helga Áss Grétarssyni o.fl. Ritið var meðal annars notað við kennslu í Eignarétti í lagadeild Háskóla Íslands og í námi til löggildingar fasteignasala. Dagný gegndi jafnframt störfum aðstoðarkennara í eignarétti við lagadeild Háskóla Íslands árið 2016.
Hún hefur að auki umfangsmikla reynslu af rekstri slysabótamála, þar sem hún hefur gætt hagsmuna einstaklinga gagnvart tryggingafélögum og öðrum bótaskyldum aðilum í yfir áratug.
Í störfum sínum hefur hún einnig öðlast víðtæka reynslu og þekkingu á sviði refsiréttar, fjölskyldu- og erfðaréttar, skiptaréttar og fasteignakauparéttar o.fl.
Starfsferill
-
SIF Lögmenn
Stofnandi, eigandi og lögmaður -
Justum – Innheimta slysabóta
Stofnandi, eigandi og lögmaður -
Lögmenn Suðurlandi og Integrum frá 2016 til 2026
Fulltrúi, héraðsdómslögmaður og deildarstjóri bótamála -
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar frá 2022
Bæjarfulltrúi fyrir Okkar Hveragerði, óháð bæjarmálafélag -
Bæjarráð Hveragerðisbæjar frá 2022
Formaður, varaformaður og almennur fulltrúi á tímabilinu -
Lagadeild Háskóla Íslands 2016
Aðstoðarkennari í Eignarétti I
Önnur stjórnar-, nefnda- og trúnaðarstörf
Samstarfsverkefni sveitarfélaga á Suðurlandi
-
Sorpstöð Suðurlands bs. frá 2022 til 2026
Stjórnarmaður, ritari stjórnar og fulltrúi á aðalfundum -
Byggðasafn Árnesinga frá 2022 til 2026
Varamaður í stjórn, fulltrúi á aðalfundum -
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands frá 2022 til 2026
Varamaður í Heilbrigðisnefnd Suðurlands og fulltrúi á aðalfundum -
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Bergrisinn bs., Héraðsnefnd Árnesinga bs. og tengd byggðasamlög, Eignarhaldsfélag Suðurlands hf. og Háskólafélag Suðurlands ehf. o.fl. frá 2022
Fulltrúi á aðalfundum -
Ýmsar fastanefndir Hveragerðisbæjar frá 2022
Fulltrúi, formennska/varaformennska, m.a. í skipulags- og umhverfisnefnd, eignasjóði, skólanefnd, menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd, samráðshóp um málefni fatlaðs fólks o.fl. -
Fasteignafélag Hveragerðis ehf. frá 2022 til 2026
Varamaður í stjórn -
Viðreisn í Árnessýslu frá 2021 til 2024
Stjórnarmaður og varaformaður -
Viðreisn, 2021 og 2024
Frambjóðandi flokksins í Suðurkjördæmi til Alþingis